Tvískinnungur eða ..?

Held að Björk og hennar hljómsveit ættu bara að láta það vera að syngja gegn virkjunum hér sem annars staðar! Ástæðan er sú, að án rafmagns myndi nú heyrast lítið í söngkonunni frægu og hennar hljómsveit. Fáir eru háðari rafmagni en hljómsveitir. Hvernig verður rafmagn til? Hvað Bubba varðar finnst mér um hann: Breyttur Bubbi.  Hann er löngu hættur að syngja um frystihús og sjóinn. Nú syngur hann bara laglegar ballöður um ljúft líf. Gott og vel. Hann er fjarri almúgamanninum, sem söng um hið erfiða líf og baslið að lifa og eiga fyrir salti í grautinn. Menn verða að hafa efni á að mótmæla. Vera sannir í baráttunni. Annað er tvískinnungur.


mbl.is Bubbi liggur undir ámælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert þá á þeirri skoðun að þeir sem noti rafmagn geti ekki gagnrýnt fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir og byggingu álvera?

Ef ég borða mat get ég ekki gagnrýnt verð á honum?

Ef ég horfi á RÚV má ég ekki vera ósammála aðferðinni við að innheimta afnotagjöldin.

Nú þykir mér orðið vandlifað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2008 kl. 15:44

2 identicon

Já  jenný. Það er það reyndar. Kv, Helga.

Helga Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband